Aðalsteinn Jón Bergdal Löggiltur fasteignasali

Stærstu viðskiptin sem maður stendur í sem einstaklingur eru kaup eða sala á fasteign og skiptir miklu máli að vera með fasteignasala sem maður getur treyst.

Þegar eign er sett í sölu er einn stærsti þátturinn að fá rétt verðmat á eignina og skilar það sér í árangursríka sölumeðferð á eigninni.

Ég býð þér frítt söluverðmat án nokkurrar skuldbindingar. Mestu máli skiptir sjónskoðun á eigninni. Auk þess koma skýrslur, varðandi sambærilegar seldar eignir og eignir í sölu í hverfinu, sér afar vel við verðmatið. Við vinnum svo lokaverðmatið saman á stofunni á verðmatsfundum áður en haft verður samband við þig. Seljandi á auðvitað alltaf lokaorðið með verðið.

Við höldum þétt í höndina á þér allt söluferlið og seljandi er alltaf vel upplýstur um hver staðan er.

Persónuleg, góð og árangursrík þjónusta.