Um Trausta fasteignasölu

Trausti fasteignasala er staðsett í Vegmúla 4. Staðsetningin er miðsvæðis og það er alltaf heitt á könnunni.

Trausti fasteignasala leggur metnað sinn í vandaða og skjóta þjónustu, hátt þjónustustig og að fylgja kaupendum og seljendum af metnaði og nákvæmni frá byrjun ferlisins til enda.

Starfsfólk Trausta kappkostar að aðstoða viðskiptavini í öllu því er kann að koma upp við kaup eða sölu fasteigna. Gildir þá einu á hvaða stigi ferlisins það kann að vera og einnig þótt afsal hafi verið gefið út. Jafnframt mun Trausti gæta meðalhófs í verðlagningu.

Trausti fasteignasala býður upp á ókeypis sölumat, án allra skuldbindinga og sölusýningar fara fram á flestum eignum. Gæði og vinnsla ljósmynda af eignum er í hæsta gæðaflokki og mikill metnaður lagður í að myndataka sé sem vönduðust.

Trausti fasteignasala leggur sig fram um að vera sýnileg á markaðnum og auglýsa kröftuglega í miðlum sem ná til markhópsins.

Eigendur Trausta fasteignasölu eru tveir, Kristján Baldursson og Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir.